Foreldrabíó


Komdu með ungann í Smárabíó og njóttu þess að horfa á nýjustu myndirnar

Foreldrabíó er bíóupplifun sem er sérsniðin að foreldrum í fæðingarorlofi sem vilja mæta með ungabörnin sín og njóta þess að horfa á nýjustu kvikmyndirnar á hvíta tjaldinu!

Í foreldrabíói lækkum við hljóðið og dimmum ljósin svo ungviðið geti sofið og foreldrar séð til þegar þarf að sinna krílunum. Við bjóðum einnig upp á skiptiaðstöðu fyrir ungabörnin. 
 
Næsta foreldrabíó: Föstudaginn 19. maí kl. 12:00
 
 

Póstlisti

Fjöldi foreldra hefur þegar notið þess að eiga gæðastund í Smárabíói með ungunum sínum og hefur mikil ánægja ríkt meðal bíógesta með framtakið. Skráðu þig á póstlistann okkar og hakaðu við Foreldrabíó svo þú missir aldrei af sýningum!