Hafa samband, Smárabíó
Hafa samband
Til að breyta bókun þarf að hafa samband hér fyrir neðan frá klukkan 09:00-16:30 á virkum dögum.
ATH til að breyta bókun um helgar eða eftir klukkan 16:30 þarf að hafa samband við miðasöluna í síma 5640000
Ekki er hægt að fá miðann endurgreiddan eftir að sýning hefst.
Týndirðu einhverju? Langar þig að koma einhverju á framfæri? Endilega fylltu út formið og við höfum samband við þig eins fljótt og auðið er!
Opnunartími
14:30 á virkum dögum
12:30 um helgar
Auglýstu vörur eða þjónustu á undan bíósýningum
Smárabíó og Háskólabíó gera kvikmyndahúsaauglýsingum hátt undir höfði og sýna þær 100% stafrænt í öllum sölum. Þannig eru gæði hljóðs og myndar langt umfram það sem gerist í sjónvarpi. Hægt er að kaupa birtingar í 1-3 vikur eða fleiri og fer afslátturinn hækkandi eftir því sem birtingatímabilið er lengra. Áherslan er fyrst og fremst á að bæta gæði og þjónustu við auglýsendur – og um leið bíógesti.
Við leggjum mikla áherslu á að auglýsingarnar birtist réttum markhópum og pössum okkur á því að para auglýsingar við kvikmyndir sem líklegar eru til að draga að sér áhorfendur sem eru áhugasamir um vöruna eða þjónustuna sem um ræðir. Bíóauglýsingar er áhrifaríkur auglýsingakostur enda fá auglýsendur gott aðgengi að viðskiptavinum sínum á þeirri stundu sem þeir eru móttækilegir og tilbúnir til að meðtaka það sem birtist á tjaldinu.
Við hugsum vel um auglýsendur okkar og bjóðum upp á ýmis fríðindi, t.d. boðsmiða á sérsýningar, galasýningar o.þ.h.
Konstantín Mikaelsson sér um auglýsingabókanir í bíóhúsunum okkar: tino@smarabio.is