Lúxus, Smárabíó
Lúxus
Í Smárabíói er heimsklassa Lúxussalur fyrir allra kröfuhörðustu gestina og hann á sér enga hliðstæðu hérlendis.
Fyrsta flokks hægindastólar fyrir 66 manns og sýningartjald af fullkomnustu gerð tryggja hámarks upplifun og þægindi. Lúxusalurinn býður einnig upp á hágæða Laser 4k myndgæði frá Barco.
Auk þess að vera eitt helsta framlag Smárabíós til bættrar bíómenningar á Íslandi hentar Lúxussalurinn einkar vel fyrir fundi og ráðstefnur, ekki síst ef ætlunin er að bjóða upp á afþreyingu í kjölfarið.
Með hverjum miða í lúxussalinn fylgir:
Popp og gos með áfyllingu ásamt einum drykk á barnum fyrir þá sem hafa aldur.