Lúxus


Í Smárabíói er heimsklassa Lúxussalur fyrir allra kröfuhörðustu gestina og hann á sér enga hliðstæðu hérlendis.
 
Fyrsta flokks hægindastólar fyrir 66 manns og sýningartjald af fullkomnustu gerð tryggja hámarks upplifun og þægindi. Lúxusalurinn býður einnig upp á hágæða Laser 4k myndgæði frá Barco.
 
Auk þess að vera eitt helsta framlag Smárabíós til bættrar bíómenningar á Íslandi hentar Lúxussalurinn einkar vel fyrir fundi og ráðstefnur, ekki síst ef ætlunin er að bjóða upp á afþreyingu í kjölfarið.
 
Með hverjum miða í lúxussalinn fylgir annað hvort:
a.) Bjórglas, léttvín, eldgos í dós ( fyrir þá sem hafa aldur til) eða gos/toppur í flösku og miðstærð af poppi
b.) Miðstærð af poppi og 500ml gos með stakri áfyllingu.
Athugið að óheimilt er að fara með ungabörn í lúxussalinn.